Ályktanir aðalfundar Arkitektafélags Íslands 2026

Ályktun aðalfundar Arkitektafélags Íslands um höfundarrétt í opinberum samningum
Aðalfundur Arkitektafélags Íslands lýsir áhyggjum af ákvæðum í nýjum rammasamningi Reykjavíkurborgar um ráðgjafaþjónustu arkitekta. Í kafla 1.2.1, Höfundarréttur og nýting gagna, er kveðið á um mjög víðtækt framsal höfundarréttar.
Fundurinn telur að slík ákvæði gangi lengra en eðlilegt getur talist og samræmist illa bæði íslenskum höfundarréttarlögum, meðalhófsreglu stjórnsýslulaga og markmiðum opinberrar stefnu um hönnun og arkitektúr sem Alþingi samþykkti árið 2023. Í þeirri stefnu er sérstaklega lögð áhersla á sanngirni, jafnræði og virðingu fyrir sköpun og réttindum hönnuða.
Úr útboðsgögnum Reykjavíkurborgar:

Aðalfundur hvetur Arkitektafélag Íslands til að:
- eiga samtal við Reykjavíkurborg um umrædd ákvæði,
- beita sér fyrir sanngjörnum og skýrum samningsskilmálum um nýtingu hönnunargagna í opinberum samningum.
Ályktun um skráningu skipulagsráðgjafa
Aðalfundur Arkitektafélags Íslands ítrekar ályktun sína og stefnu félagsins frá aðalfundi 2025 um að styrkja stöðu og réttindi arkitekta í skipulags- og byggingarmálum.
Þrátt fyrir þá afstöðu hafa nýlega komið upp dæmi þar sem reyndum arkitektum með áratuga reynslu af skipulagsgerð og mótun hins byggða umhverfis hefur verið synjað um skráningu í gagnagrunn skipulagsráðgjafa hjá HMS og þar með verið meinað að skila inn skipulagsgögnum.
Aðalfundur telur slíka framkvæmd óásættanlega og að hún endurspegli ekki þá sérþekkingu sem arkitektar búa yfir á sviði skipulags og hönnunar. Arkitektar hafa gegnt lykilhlutverki í gerð skipulagsáætlana á Íslandi um áratuga skeið og menntun þeirra og reynsla ætti að teljast fullnægjandi grundvöllur til skráningar.
Hingað til hafa arkitektar getað skilað inn skipulagsuppdráttum til samþykktar, en nú hafa þau réttindi í reynd verið afnumin. Auk þess eru dæmi um að þátttaka í opnum samkeppnum krefjist leyfis til að leggja skipulagsuppdrætti fyrir skipulagsnefnd. Fundurinn bendir á að með nýjum verkferlum hafi arkitektar verið sviptir réttindum sem áður voru til staðar.
Fundurinn skorar á Skipulagsstofnun og stjórnvöld að endurskoða skilyrði og framkvæmd skráningar skipulagsráðgjafa þannig að menntun og reynsla arkitekta í skipulagsgerð njóti sanngjarnrar viðurkenningar.