Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Norðurslóð: Spurningar og svör um forval og samkeppnisferli

25. júlí 2026

English version below.

Trúnaðarmanni hafa borist nokkrar fyrirspurnir vegna fyrirhugaðrar samkeppni um Norðurslóð, nýjan alþjóðlegan Norðurslóðakjarna í Vatnsmýrinni. Hér eru helstu upplýsingar um forvalið, fyrirkomulag samkeppninnar og svör við þeim spurningum sem borist hafa.

Ferlið í stuttu máli

1. Opið forval – umsóknarfrestur 15. ágúst 2026

Arkitektastofur og arkitektateymi sem hafa áhuga á þátttöku skulu senda formlega staðfestingu á netfangið trunadarmadur@ai.is eigi síðar en 15. ágúst 2026.

Með staðfestingunni skal fylgja eitt skjal, að hámarki ein A4 síða, með grunnupplýsingum um viðeigandi reynslu, faglega hæfni og getu stofunnar eða teymisins til að takast á við verkefni af þessari stærðargráðu og eðli. Ekki á að skila hönnunartillögu á þessu stigi.

2. Val þátttakenda

Valnefnd fer yfir innsendar umsóknir og velur 5–7 teymi til þátttöku í fyrri fasa samkeppninnar. Stefnt er að því að valið fari fram á um það bil einni viku eftir að umsóknarfresti lýkur.

3. Fyrri fasi hefst 24. ágúst 2026

Samkeppnin hefst formlega 24. ágúst þegar vefsvæði hennar verður opnað fyrir valda þátttakendur. Fyrri fasinn stendur í sex vikur og felur meðal annars í sér kynningu teymanna á nálgun sinni og fyrstu hugmyndum. Í kjölfarið getur valnefnd veitt endurgjöf sem þau teymi sem komast áfram geta tekið mið af.

Að loknum fyrri fasa verða 3–5 teymi valin áfram í síðari fasa.

4. Síðari fasi og lokaskil

Síðari fasinn er nafnlaus samkeppnisfasi og stendur í rúmlega sex vikur. Lokaskil samkeppninnar verða 1. desember 2026.

Hvert teymi sem tekur þátt í síðari fasa og skilar gildri tillögu í samræmi við kröfur samkeppnislýsingarinnar fær fasta þóknun að fjárhæð 2.000.000 kr.

5. Framhald verkefnisins

Stefnt er að því að gera samning við sigurvegara um vinningstillöguna, þegar fjármögnun þess hefur verið tryggð.

 

Spurningar og svör

Er öllum heimilt að taka þátt í fyrri fasa?

Nei. Öllum arkitektastofum og arkitektateymum sem uppfylla skilyrðin er heimilt að sækja um þátttöku í samkeppninni. Valnefnd velur síðan 5–7 teymi úr hópi umsækjenda til þátttöku í fyrri fasa.

Fá einhver teymi boð um að fara beint í síðari fasa?

Nei. Engu teymi er boðið beint í síðari fasa. Allir þátttakendur fara í gegnum sama ferli: Opið forval, fyrri fasa og síðan val inn í síðari fasa.

Þarf að skila öðru en einni A4 síðu fyrir 15. ágúst?

Nei. Umsóknin felst eingöngu í formlegri staðfestingu á áhuga ásamt einni A4 síðu með upplýsingum um stofuna eða teymið. Ekki er um sérstakt Invitation to Participate eða Request for Expressions of Interest skjal að ræða og ekki á að skila hönnunargögnum á þessu stigi.

Hvaða upplýsingar eiga að koma fram á A4 síðunni?

Þar skulu koma fram hnitmiðaðar upplýsingar um:

  • viðeigandi reynslu,
  • faglega hæfni og styrkleika,
  • getu til að takast á við verkefni af þessari stærðargráðu og eðli.

Gagnlegt getur verið að vísa til verkefna af sambærilegum skala eða flækjustigi. Við val þátttakenda verður litið til reynslu, hæfni, getu og þess hvernig faglegir styrkleikar umsækjenda nýtast verkefninu.

Þarf endanlegt teymi að liggja fyrir á umsóknarstigi?

Nei. Ekki er gerð krafa um fullskipað ráðgjafateymi á þessu stigi. Óskað er eftir umsóknum frá arkitektastofum eða arkitektateymum en umsækjendum er heimilt að tilgreina aðra aðila ef þeir kjósa. Einnig má bæta samstarfsaðilum við síðar.

Þarf íslenskur arkitekt með heimild til að leggja inn aðaluppdrætti að vera hluti af teyminu á umsóknar- eða samkeppnisstigi?

Nei. Heimilt er að sækja um og taka þátt í samkeppninni án þess að vera þegar komin í formlegt samstarf við íslenskan arkitekt með slík réttindi. Við áframhaldandi hönnun vinningstillögunnar og framlagningu aðaluppdrátta þarf hins vegar að tryggja aðkomu aðila með tilskilin réttindi samkvæmt íslenskum reglum.

Er greidd þóknun fyrir þátttöku í fyrri fasa?

Nei. Þóknun er ekki greidd fyrir umsókn í forval eða þátttöku í fyrri fasa. Hvert teymi sem er valið í síðari fasa og skilar gildri tillögu samkvæmt samkeppnislýsingu fær 2.000.000 kr. fasta þóknun.

Fær sigurvegari sérstök verðlaun til viðbótar við þóknunina?

Nei. Öll teymi sem skila gildri tillögu í síðari fasa fá 2.000.000 kr. þóknun. Ekki verða greidd sérstök peningaverðlaun til sigurvegara umfram þá fjárhæð. Eldra orðalag þess efnis í drögum að samkeppnislýsingu hefur verið leiðrétt.

Hafa einhverjar stofur þegar verið valdar eða fengið forskot?

Nei. Engar stofur hafa verið valdar fyrir fram eða fengið önnur gögn en þau sem gerð hafa verið aðgengileg. Allir umsækjendur fá sömu upplýsingar og fara í gegnum sama valferli.

Hvar verða leiðréttingar og frekari upplýsingar birtar?

Endanleg samkeppnisgögn verða birt þegar samkeppnin hefst formlega. Sérstakt vefsvæði verður opnað fyrir valda þátttakendur. Fram að því verða mikilvægar skýringar og uppfærslur birtar eftir því sem við á.

Drög að samkeppnislýsingu og tímaáætlun eru aðgengileg áhugasömum til kynningar og geta tekið breytingum fram að formlegri opnun samkeppninnar. Fyrirspurnir má senda trúnaðarmanni samkeppninnar á trunadarmadur@ai.is.

English version

Norðurslóð: Questions and Answers on the Prequalification and Competition Process

The competition has received several enquiries regarding the proposed competition for Norðurslóð, a new international Arctic hub in Vatnsmýri, Reykjavík. Below is an overview of the prequalification and competition process, together with answers to the main questions received.


The process

1. Open prequalification – application deadline 15 August 2026

Architectural practices and teams interested in participating must submit a formal expression of interest by email to trunadarmadur@ai.is no later than 15 August 2026.

The expression of interest must be accompanied by a single document of no more than one A4 page, providing basic information about the practice’s or team’s relevant experience, professional qualifications and capacity to undertake a project of this scale and nature. No design proposal is required at this stage.

2. Selection of participants

A selection committee will review the applications and select 5–7 teams to participate in the first phase of the competition. The selection process is expected to be completed approximately one week after the application deadline.

3. First phase begins on 24 August 2026

The competition will formally begin on 24 August, when the competition website will open to the selected participants. The first phase will last six weeks and will include, among other things, presentations by the teams outlining their approach and initial ideas. The selection committee may subsequently provide feedback for the teams advancing to the next phase to consider.

At the end of the first phase, 3–5 teams will be selected to proceed to the second phase.

4. Second phase and final submission

The second phase will be an anonymous competition phase lasting just over six weeks. The deadline for final submissions will be 1 December 2026.

Each team participating in the second phase that submits a valid proposal in accordance with the requirements of the competition brief will receive a fixed fee of ISK 2,000,000.

5. Continuation of the project

The intention is to enter into an agreement with the winner regarding the winning proposal once funding for the project has been secured.

Questions and answers

Is everyone permitted to participate in the first phase?

No. All architectural practices and teams that meet the requirements are eligible to apply to participate in the competition. The selection committee will then choose 5–7 teams from among the applicants to participate in the first phase.

Will any teams be invited to proceed directly to the second phase?

No. No team will be invited directly to the second phase. All participants will follow the same process: open prequalification, the first phase and then selection for the second phase.

Is anything other than a single A4 page required by 15 August?

No. The application consists solely of a formal expression of interest accompanied by one A4 page containing information about the practice or team. There is no separate Invitation to Participate or Request for Expressions of Interest document, and no design material should be submitted at this stage.

What information should be included on the A4 page?

It should include concise information about:

  • relevant experience;
  • professional qualifications and strengths;
  • capacity to undertake a project of this scale and nature.

It may be useful to refer to projects of a comparable scale or level of complexity. The selection of participants will be based on experience, qualifications, capacity and how the applicants’ professional strengths may contribute to the project.

Does the final team need to be in place at the application stage?

No. A complete consultant team is not required at this stage. Applications are invited from architectural practices or teams, although applicants may identify other parties if they wish. Additional collaborators may also be added at a later stage.

Must an Icelandic architect authorised to submit building permit drawings be part of the team at the application or competition stage?

No. Applicants may apply and participate in the competition without having already established a formal partnership with an Icelandic architect holding such authorisation. However, during the continued development of the winning proposal and the submission of building permit drawings, the involvement of a professional holding the required authorisation under Icelandic regulations must be ensured.

Is a fee paid for participation in the first phase?

No. No fee is paid for submitting an application or participating in the first phase. Each team selected for the second phase that submits a valid proposal in accordance with the competition brief will receive a fixed fee of ISK 2,000,000.

Will the winner receive a separate prize in addition to the fee?

No. All teams that submit a valid proposal in the second phase will receive a fee of ISK 2,000,000. No additional monetary prize will be awarded to the winner. Earlier wording to that effect in the draft competition brief has been corrected.

Have any practices already been selected or given an advantage?

No. No practices have been selected in advance or provided with any information other than the material made publicly available. All applicants will receive the same information and go through the same selection process.

Where will corrections and further information be published?

The final competition documents will be published when the competition formally begins. A dedicated competition website will be opened for the selected participants. Until then, important clarifications and updates will be published as appropriate.

The draft competition brief and timetable are currently available to interested parties for information and may be subject to change until the formal launch of the competition.

Enquiries may be sent to the competition secretary at trunadarmadur@ai.is.

Tengt efni

  • Fyrirhuguð samkeppni um uppbyggingu nýs alþjóðlegs Norðurslóðakjarna í Vatnsmýrinni í Reykjavík

Dagsetning
25. júlí 2026

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • Architecture

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200