Verðmætasköpun og úthlutun Hönnunarsjóðs – tölum um hönnun og arkitektúr

Miðvikudaginn 18. mars kl. 9:00 beinum við sjónum að verðmætasköpun og útflutningi sem byggir á hönnun og arkitektúr og fyrirtækjum sem hafa haft hönnun og arkitektúr sem grundvallandi breytur í nýsköpun og viðskiptalegum árangri.
Fyrirlesturinn er haldinn á sama tíma og fyrsta úthlutun Hönnunarsjóðs í ár, en mörg verkefni og tækifæri skapast í kring um sjóðinn.
Hlutverk Hönnunarsjóðs er að efla þekkingu og atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi og ráðgjöf. Einnig að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis sem stuðlar að útflutningi á íslenskri hönnun.
Úthlutun Hönnunarsjóðs fer fram strax á eftir fyrirlestrinum en það er Borghildur Sölvey Sturludóttir, formaður stjórnar sem afhendir styrkina.
Stjórnendur úr leiðandi fyrirtækjum sem hafa hönnun og arkitektúr að leiðarljósi í starfsemi sinni til að auka gæði, samkeppnishæfni og verðmætasköpun ásamt sérfræðingum úr nýsköpunarumhverfinu halda erindi og mætast í áhugaverðu samtali.
- Sigurður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri brand, markaðsmál og viðskiptaþróun, Bláa lónið
- Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri, 66°Norður.
- Páll Einarsson, listrænn stjórnandi, Rafnar.
- Agnar Tr. Lemacks, ráðgjafi og eigandi, ATON, hluthafi í Good Good
- Guðrún Inga Ingólfsdóttir, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs.
- Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu.
Umræðustjóri er Bergur Finnbogason, listrænn stjórnandi hjá CCP.
Við tökum fagnandi á móti gestum með kaffi og kruðerí en húsið opnar kl. 8:30.
Verið hjartanlega velkomin!
Gróska, Vísindagarðar og Bláa Lónið eru samstarfsaðilar Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og fyrirlestraraðarinnar Tölum um hönnun og arkitektúr.