Löggilding
Starfsheitið landslagsarkitekt er löggilt starfsheiti hér á landi skv. lögum um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni-og hönnunargreinum, nr. 8/1996, með síðari breytingum.
Atvinnuvegaráðuneytið veitir leyfi um starfsheiti. Rafrænt umsóknareyðublað má finna á þjónustuvef ráðuneytisins eftir innskráningu með rafrænum skilríkjum eða veflykli : eyðublað. Prófskírteini þarf að fylgja með.
Meðferð umsóknar: Atvinnuvegaráðuneytið sendir umsókn og prófskírteini til umsagnar FÍLA. Stjórn félagsins fer yfir umsóknir og menntanefnd félagsins er stjórn til aðstoðar um inntöku nýrra félaga og leyfisveitinga vegna starfsheitis. Ef umsögn FÍLA er jákvæð er hún send ráðuneytinu. Atvinnuvegaráðuneytið útbýr leyfisbréf og umsækjanda er tilkynnt að leyfisbréfið sé til afhendingar í ráðuneyti gegn greiðslu.
Fullgildir félagsmenn geta einir sett skammstöfunina FÍLA fyrir aftan starfsheitið landslagsarkitekt.
© Félag íslenskra landslagsarkitekta – ritari@fila.is