
Rótgróin arkitektastofa leitar að nýjum rekstraraðila
12. september 2022

Fyrirlestur með Marcos Zotes á Hönnunarsafninu
Marcos Zotes, einn af eigendum arkitektastofunnar Basalt, segir frá sambandinu á milli samfélagslegs, náttúrulegs og tilbúins umhverfis með útgangspunkti í verkum Basalts. Fyrirlesturinn fer fram á ensku laugardaginn 10. september frá 14 - 15.
7. september 2022

Fjölmargar ábendingar bárust til Hönnunarverðlauna Íslands 2022
Búið er að loka fyrir innsendingar á ábendingum til Hönnunarverðlauna Íslands 2022 en fjölmargar ábendingar bárust í tveimur flokkum, Hönnunarverðlaun Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun 2022. Nú hefst vinna dómnefndar á fullu. Hönnunarverðlaun Íslands 2022 fara fram í Grósku þann 17. nóvember, takið daginn frá!
31. ágúst 2022

Hverjir skipa dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2022?
Dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2022 er í startholunum en framundan er vandasöm vinna við að velja handhafa heiðursverðlauna Hönnunarverðlauna Íslands, viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun og svo sjálf aðalverðlaunin, Hönnunarverðlaun Íslands. En hverjir skipa dómnefndina?
24. ágúst 2022

Vilt þú taka að þér sæti varamanns í fulltrúaráði Listahátíðar?
Arkitektafélag Íslands óskar eftir félagsmanni til að taka að sér sæti sem varamaður í fulltrúarráði Listahátíðar en fulltrúarráð er listrænn bakhjarl Listhátíðar.
19. ágúst 2022

Nesstofa við Seltjörn-Útgáfuhóf
Nesstofa við Seltjörn eftir Þorstein Gunnarsson arkitekt í útgáfu Þjóðminjasafns Íslands er komin út. Í tilefni útgáfunnar býður Þjóðminjasafn Íslands í útgáfuhóf föstudaginn 19. ágúst kl. 16.00, vegna útgáfu bókarinnar Nesstofa við Seltjörn eftir Þorstein Gunnarsson, arkitekt.
18. ágúst 2022

Sigríður Maack formaður AÍ segir ógáfulegt að spara við uppbyggingu á íbúðarhúsnæði
,,Ógáfulegt að spara við uppbyggingu á íbúðarhúsnæði" segir Sigríður Maack formaður AÍ í samtali við Mbl.is fyrr í vikunni. Þar ræddi hún um mikilvægi sálrænna þátta þegar kemur að uppbyggingu á íbúðarhúsnæði og þéttingu byggðar.
18. ágúst 2022

FISKUR, FÓTBOLTI, PÓLITÍSK VISTFRÆÐI Á MENNINGARNÓTT
Architectural Association (AA) í London og Listaháskóla Íslands hafa sameinað krafta sína og mótað verkefnið AA Visiting School Iceland (AAVS Iceland). Undanfarnar tvær vikur hafa fjölbreyttur hópur arkitekta- og hönnunarnema undir hatti AAVS ICELAND kynnt sér tengsl veiða og fótbolta og verður afraktur þeirrar rannsóknarvinnu kynntur fyrir almenningi á Menningarnótt 20. ágúst á KexHostel, Kex Hostel, Skúlagötu 28, milli kl. 17.00-19.00.
16. ágúst 2022

Taktu þátt í HönnunarMars 2023!
Frestur til að senda inn umsókn fyrir HönnunarMars 2023 rennur út fimmtudaginn 29. september.Hátíðin fer fram í fimmtánda sinn dagana 3. - 7. maí og breiðir úr sér um Reykjavík og nágrenni með fjölbreyttum sýningum og viðburðum sem endurspegla grósku og nýsköpun hönnunarsamfélagsins. Umsókn þarf ekki vera fullunnin fyrir þennan frest og gefst þátttakendum með samþykktar umsóknir færi á að uppfæra upplýsingar til 15. febrúar 2023.
16. ágúst 2022

Samkeppnir fyrirhugaðar á haustdögum
Til upplýsinga fyrir félagsmenn þá lítur allt út fyrir að það verði fjöldi samkeppna sem mun fara af stað núna í haust.
16. ágúst 2022

Opid kall í Ásmundarsal
Ásmundarssalur óskar eftir tillögum að sýningum, viðburðum eða uppákomum sem fanga fjölbreytileika listarinnar fyrir næsta sýningarár. Frestur til 4. september.
11. ágúst 2022

Hvað hefur skarað fram úr? Opið fyrir ábendingar til Hönnunarverðlauna Íslands 2022
Búið er að opna fyrir ábendingar til Hönnunarverðlauna Íslands 2022 og hægt er að benda á eigin verk eða annarra til miðnættis 29. ágúst 2022. Markmið með ábendingum er að tryggja að afburða verk fari ekki fram hjá dómnefnd og því hvetjum við eigendur góðra verka til þess að tilnefna eigin verk.
8. ágúst 2022

Opið fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð
Opið er fyrir umsóknir í síðari úthlutun Hönnunarsjóðs. Frestur er til miðnættis 22. september.
4. ágúst 2022

Drög stefnu í málefnum hönnunar og arkitektúrs í samráðsgátt
Drög stefnu í málefnum hönnunar og arkitektúrs hefur nú verið birt í samráðsgátt stjórnvalda af Menningar- og viðskiptaráðuneyti.
25. júlí 2022

Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð kominn í samráðsgátt
Opið er fyrir umsagnir til og með 31. ágúst nk. og eru allir áhugasamir aðilar hvattir til þess að skila inn umsögn.
5. júlí 2022

Skráning á verkum íslenskra arkitekta - Styrkur frá Nýsköpunarsjóði námsmanna
Arkitektafélag Íslands í samstarfi við LHÍ og Hönnunarsafn Íslands hlutu styrk nýverið frá Rannsóknarsjóði námsmanna til skráningu á verkum íslenskra arkitekta.
30. júní 2022

Fagfélagið og/eða stéttarfélagið Arkitektafélag Íslands
Arkitektafélag Íslands hefur starfað sem fag-og stéttarfélag síðan 2017. Stjórn vill taka upp umræðu við félagsmenn AÍ um hvort breyta eigi þessu fyrirkomulagi og aðskilja stéttarfélagið frá fagfélaginu.
8. júlí 2022

Sumarlokun á skrifstofu Arkitektafélags Íslands
8. júlí 2022

Lifandi samfélag við sjó hlýtur fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um framtíð Breiðarinnar á Akranesi
Tillaga frá arkitektastofunni Arkþing/Nordic og Eflu verkfræðistofu hlaut fyrstu verðlaun í veglegri hugmyndasamkeppni um framtíð Breiðarinnar á Akranesi en verðlaunaafhending fór fram í Hafbjargarhúsinu í dag.
27. júní 2022

Rýnifundur-Hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Breiðarinnar á Akranesi
Rýnifundur um tillögurnar 24 sem bárust í hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Breiðarinnar verður haldinn fimmtudaginn 30. júní kl. 17.00 í Hafbjargarhúsi, Breiðargötu 2c, á Akranesi.
27. júní 2022
