
Samtal um Hraunmyndanir
Sunnudaginn 12. apríl kl. 14:00-15:00 efnir Listasafn Reykjavíkur í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs til samtals um verkefnið Hraunmyndanir, framlag Íslands til 19. alþjóðlega Feneyjartvíæringsins í arkitektúr 2025 og birtingarmyndir hrauns í bæði myndlist og arkitektúr á Íslandi.
9. apríl 2026

Tölum um hönnun og arkitektúr: Samtal um borgargæði með sérfræðingum og oddvitum í Reykjavík
Hvernig sköpum við borgargæði með arkitektúr og hönnun? Í aðdraganda kosninga þá beinum við sjónum að borgargæðum og hvernig beita má arkitektúr og hönnun með markvissum hætti við uppbyggingu borgarinnar til að skapa gæði og gott samfélag fyrir íbúa, börn og fullorðna. Þrír fyrirlesarar taka til máls og í framhaldi mæta forystumenn stjórnmálaflokkanna í Reykjavík í pallborðsumræður.
9. apríl 2026
Vilt þú hafa áhrif á þróun samræmdra verklýsinga á Íslandi?
Undirbúningshópur Verklýsinga Íslands,
HMS/Burður, SI, Vegagerðin, FSRE og Verkplan boðar til vinnustofu þar sem markmiðið er að móta næstu skref í uppbyggingu sameiginlegs verklýsingagrunns fyrir íslenskan mannvirkjaiðnað.
1. apríl 2026

Ályktanir aðalfundar Arkitektafélags Íslands 2026
Ályktun aðalfundar Arkitektafélags Íslands um höfundarrétt í opinberum samningum og
ályktun um skráningu skipulagsráðgjafa
30. mars 2026

Viltu taka þátt í að móta framtíð hönnunar og arkitektúrs á Íslandi?
Auglýst eftir framboðum frá öflugum fulltrúum fagfólks úr baklandi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs til setu í ólíkum stjórnum á vegum miðstöðvarinnar. Vinsamlegast athugið að einungis félagsmenn fagfélaga Miðstöðvarinnar geta boðið sig fram.
26. mars 2026

Ákvarðanir aðalfundar Arkitektafélags Íslands 2026
Fjölmennt var á aðalfundi Arkitektafélags Íslands sem haldinn var þann 12. mars í Grósku
24. mars 2026

Praxis Arkitektúr leitar að arkitekt eða byggingarfræðingi til starfa
Praxis Arkitektúr er arkitektastofa sem veitir alhliða þjónustu og leggur áherslu á að skapa vönduð og innblásin rými. Verkefni okkar eru fjölbreytt og í allri hönnun leggjum við áherslu á þarfir og vellíðan þeirra sem nýta rýmin.
18. mars 2026

Aðalfundur AÍ - áminning & frekari upplýsingar
Minnum á aðalfund Arkitektafélags Íslands á morgun, 12. mars í Fenjamýri, Grósku, kl. 17. Fundinum verður streymt fyrir þau sem komast ekki á staðinn, hlekk á fundinn má finna hér.
11. mars 2026

Aðalfundur BÍL 2026
Aðalfundur BÍL verður haldinn sunnudaginn 22. mars í Hannesarholti frá kl. 15:00 - 17:00.
11. mars 2026

Rammasamningur um sérfræðiþjónustu USK er nú í auglýsingu
Vekjum athygli á því að útboð nr. 16261 Rammasamningur um sérfræðiþjónustu umhverfis og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er nú í auglýsingu.
3. mars 2026

Væntanlegar breytingar á skilum lífsferilsgreininga (LCA)
HMS vill vekja athygli væntanlegum breytingum á skilum lífsferilsgreininga (LCA) fyrir umsóknir um byggingarleyfi.
25. febrúar 2026

Fyrirspurnir og svör - Samkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis
Svör dómnefndar við fyrirspurnum sem bárust varðandi skipulagssamkeppni fyrir Akureyrarvöll
26. febrúar 2026

Aðalfundur Arkitektafélags Íslands 2026
Aðalfundur Arkitektafélag Íslands verður haldinn fimmtudaginn 12. mars kl. 17:00 í Grósku, í salnum Fenjamýri á jarðhæð. Fundinum verður einnig streymt fyrir þau sem ekki eiga heimangengt, svo allir félagsmenn geti tekið þátt óháð staðsetningu.
25. febrúar 2026
Teiknistofan Óðinstorgi verkefni Vilhjálms Hjálmarssonar leitar að arkitekt með reynslu til að taka við fjölbreyttum verkefnum stofunnar samhliða eigin verkefnum.
16. febrúar 2026

Hring eftir hring eftir hring - tölum um hönnun og arkitektúr
Nú á öðrum fyrirlestri nýs árs beinum við sjónum að hringrás efna í vörum og textíl og hvernig hönnuðir fara að því að taka efnastrauma og beina þeim í nýja farvegi og endurskapa. Næsti fyrirlestur verður haldinn miðvikudaginn 11. febrúar kl. 9 í Grósku en húsið opnar 8:30 með kaffi og kruðerí.
4. febrúar 2026

Ísland í fremstu röð í Evrópu í stefnumótun á sviði hönnunar og arkitektúrs
Í nýlegri evrópskri skýrslu, Design Policy Mapping in Europe, fær Ísland afar jákvæða umfjöllun fyrir stefnu stjórnvalda á sviði hönnunar og arkitektúrs til ársins 2030, sem kallast Útlínur framtíðar. Þar er íslenska stefnan sögð ein sú heildstæðasta í Evrópu og er nefnd sem mikilvægt dæmi um hvernig hönnun getur verið framtíðarmiðuð og orðið órjúfanlegur hluti af stefnumótun samfélagsins í heild.
4. febrúar 2026
Tölum um arkitektúr: ný myndskeið í loftið á samfélagsmiðlum
Umræða um manngert umhverfi og arkitektúr hefur aukist verulega í íslensku samfélagi að undanförnu og fyrir því eru margar ástæður svo sem þétting byggðar, ný hverfi, áskoranir í húsnæðismálum ungs fólks, þátttaka Íslands í Feneyjartvíæringi í arkitektúr, umhverfismál og skiptar skoðanir á gæðum þess sem byggt er – svo ekki sé minnst á Græna gímaldið.
3. febrúar 2026

Sýningin Eitraðar grundir eftir Bernard Khoury
Arkitektinn og listamaðurinn Bernard Khoury opnar sína fyrstu einkasýningu á Íslandi í Listasafn Árnesinga. Sýningin stendur yfir frá 7. febrúar til 23. ágúst 2026.
2. febrúar 2026

Skipulagssamkeppni - Akureyrarvöllur og nágrenni
Akureyrarbær efnir til opinnar framkvæmdasamkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis í samvinnu við Arkitektafélag Íslands (AÍ).
16. febrúar 2026

Kallað eftir hugmynd að sýningu fyrir hönnunarhátíðina 3daysofdesign
3daysofdesign er árleg þriggja daga hönnunarhátíð sem fer fram víða um miðborg Kaupmannahafnar í júní. Hátíðin hefur vaxið mjög undanfarin ár og er vettvangur hundruð alþjóðlegra vörumerkja og upprennandi hönnuða. Ísland tekur að sjálfsögðu þátt líkt og undanfarin ár.
29. janúar 2026
